Jón Gnarr ætlar að hætta! Þar kom hann mér eins og flestum á óvart og skýring hans sjálfs að hann væri ekki stjórnmálamaður heldur grínisti. Loksins fattaði ég djókinn. Borgarstjórastarfið var grín, eða öllu heldur gerningur, listgerningur en ekki stjórnmálagerningur og frá fagurfræðilegu sjónarmiði hlaut hann að hætta núna. Gerningnum lokið með glæislegri útgöngu.
Ég kann ekki að skýra út list, en kann að meta list eins og hver annar. Góð list hrífur mann og sýnir heiminn í nýju ljósi; hún er alltaf á undan í mark og lætur mann ekki grípa sig, frekar en ýsan andskotann. Og þeim mun betri verður listin sem hún sýnir hversdagslegri hluti á nýjan hátt. Góð list bætir miningar manns og menningu, sum list breytir meira að segja heiminum og menningu okkar allra.
Ég hélt að Jón Gnarr yrði trúður á borgarstjórastóli. Trúður sem gerði grín að öllu tilstandinu, hæddist að stjórnmálunum og gæfi okkur útrás fyrir reiði og angist, en það varð ekki. Samt neitaði hann að verða stjórnmálamaður. Jón Gnarr fann aðra leið, hann varð hvorki trúður né stjórnmálamaður, heldur venjulegur maður. Það var grínið, Jón Gnarr borgarstjóri og venjulegur maður. Það hlýtur að hafa tekið á. Hann lét hjartað ráða, eins og valdalausir og plottlausir menn gera í fláráðum heimi og neitaði að taka til vopna. Borgarstjórinn sem neitaði pólitískri herþjónustu, gerði hvorki grín að andstæðingum sínum né reifst við þá. Stjórnmálamaður sem neitaði að eiga andstæðinga og setti blómið í byssuhlaupið. En þótt hermenn með blóm í byssuhalupinu vinni engin stríð er hugmyndin af blóminu í byssuhlaupinu dæmi um listaverk sem lifir svo lengi sem byssur verða til. Því þegar stríðin hafa geysað og blóðið runnið eftir strætunum og fólkið er orðið úrvinda af stríðsrekstri getur mynd af blómi í byssukafti stöðvað stríð. Þanning kom þessi gerningur Jóns Gnarr og félaga sem frelsun undan stjórnmálum sem voru komin fram yfir að vera léleg, spillt og hneykslanleg en orðin beinlínis sorgleg og niðurlægjandi.
Og þá er bara að þakka fyrir sýninguna og vona að okkur auðnist að draga ályktanir af þessu áhrifamikla verki um venjulega manninn í borgarstjórastólnum.