Friday, May 16, 2014

Mannlíf, mannlíf og aftur mannlíf

Þegar ég kom þangað fyrst, var Siglufjörður höfuðborg hruns á Íslandi. Fúnar bryggjur, tankagímöld og skemmur blöstu við í hryggilegum bæ. Ég man eftir að hafa eigrað um risastóran steypuvöll, einhverskonar síldarvarpa, og það var ekki kjaftur á kreiki í bænum. En þegar hún móðir mín kom þarna fyrst var manngrúinn meiri en hún hafði á ævinn séð, þó alin væri upp á Lækjartorgi.  Og fyrir rúmum hundrað árum þegar Albert Engstöm, sænskur rithöfundur,  kom þangað féll hann eins og allir hinir í stafi yfir mannlífinu og síldinni.  Hann réð þar gátu tilverunnar og ráðningin var síld, síld og aftur síld. Hann langaði ákaflega í sænskan púns að því loknu, en rak sig á innflutningsbann á áfengi, bannlögin á næsta leiti. Þá kom sér vel að það voru 23 leynikrær á Siglufirði, segir hann og vill ekki gefa upp hvar hann fékk sér í staupinu, til að ljóstra ekki upp um eina einustu þeirra. 

Vonadi bragðaðist púnsinn, þó ráðningin á gátu tilverunnar væri ekki alls kostar rétt, hann flaskaði á mannlífinu.  Siglufjörður hefur nefnilega ekki bara verið höfuðstaður síldarinnar, heldur líka mannlífsins á Íslandi. „Ég hef aldrei verið gift, en ég hef verið á Siglufirði“, sagði kerlingin. Mannlíf er kraftur, dregur að sér líf eins og segull, finnur sínar eigin leiðir og sprengir af sér fjötra. Heimskulega fjötra eins og áfengisbann. Síldina kölluðum við silfur hafsins, en gleymdum eðalmálminum í sjálfu fólkinu. 

Við misstum sem sagt af aðalatriðinu, höfum einblínt á síld og fisk og þessa hvalreka atvinnulífsins, þegar hinn raunverulegi auður er fólginn í okkur sjálfum.  Því ef við fólk fær til þess frelsi, skapar það verðmæti úr því sem það hefur. Sjáið bara Landann, þar sem RÚV sýnir okkur sögur af fólki sem gerir silfur úr hlutum sem manni hefði ekki órað fyrir að gætu orðið verðmæti. Nákvæmlega þetta er menning, fólk sem nýtur sín og fær að gera það sem það gerir vel. Og iðandi mannlíf með ólíkar hugmyndir, kunnáttu og reynslu margfaldar kraft menningarinnar.

Fyrir nokkrum dögum gekk ég niður Bankastæti og fyrir aftan mig tveir ungir menn og töluðu ensku. Annar á móðurmálinu en hinn með þessum fallega, harða íslenska hreim. Þeir töluðu tæknimál um  öpp, skýveitur og gagnaflutninga. Svo varð mér ljóst, að þetta var ekki venjulegt strákahjal, heldur voru þeir í raun og veru að smíða app og svo ákafir appsmiðir, að þeir tóku sér ekki hvíld á leiðinni í mat. Þá skaut upp í huga mér skyndimynd Steins Steinars af bæjarlífinu á stríðsárunum, þar sem tveir menn húktu á Tjarnarbakkanum og töluðu um hvað Tjörnin væri fiskilegt vatn. Samt væri enginn fiskur í henni. Mikið hefur Reykjavík batnað. 
Sú Reykjavík sem ég man fyrst var leiðinleg borg. Veitingastaðir að heita engir nema á hótelunum, þar sem útgerðarmógúlar, þingmenn og aðrir stórbokkar gistu helst yfir vetrarmánuðina. Þar var drukkið á herbergjunum og migið í vaskana, en unglingaskríll borgarinnar mátti norpa á Hallærisplaninu og drekka náravolgt brennvín í kók úr buxnastrengnum, enda bjórinn bannaður í nafni ungdómsins. Menning á hallærisplani.

En það er ekki að undra að menning eigi stundum erfitt uppdráttar, því að margt fólk, ekki síst þeir sem kallast valdhafar, óttast mannlíf og menningu. Eins og draughræddir fælast myrkrið, ímyndar þetta fólk sér alls konar hræðilega hluti, ef annað fólk fær að leika lausum hala. En mannlíf er kröftugt afl og nú vaknar gamall Reykvíkingur eins og ég upp við að borgin hefur smám saman gerbreyst og þjóðin um leið.  Lífskraftur og fjölbreytileiki er alls staðar sýnilegur, ekki bara þessi margumtalaði í líki skeggjuðu söngkonunnar,  heldur miklu frekar þessi dagsdaglegi á götum borgarinnar eða í Kolaportinu, sameiginlegum uppáhaldsstað nýbúa og neftóbakskarla. Og daginn sem stelpa með bleikt hár og pírsing selur þér soðninguna í fiskbúðinni og það eru töluð 4 tungumál í biðröðinni fattarðu, að ekkert er lengur eins og það var. 
En á sama tíma rís í landinu hreyfing pólitískra uppvakninga í nafni þjóðlegarar afturhaldssemi. Tekur flugvöll í fóstur til að forða boginni undan frekara mannlífi og telur afbragðshugmynd að Guðni Ágústsson verði borgarstjóri. Menn sjá í hyllingum áburðarversmiðju rísa, í nafni ungdómsins og bíða eftir hvalrekanum, stóriðju með ruðningsáhrifum og öllu. Skilja svo ekkert hvað tefur málið,  frekar en karlarnir skildu af hverju enginn fiskur væri í Tjörninni. En verst er þó að þetta er hreyfing ánauðar sem talar máli nokkurra höfðingja, sem vilja eigna sér auðlindir og gæði landsins fyrir ekki neitt og talar máli þeirra sem hafa komið sér fyrir í kerfum eins og landbúnaðinum og halda öllum þráðum í hendi sér með útbýtingum og höftum. Vill svo auðvitað ríghalda í ónothæfan gjaldmiðilinn, fyrir þá sem finnst best að mjólka kúna í höftum.
Svo segja þau um þá sem andæfa, að þeir hafi ekki trú á  Íslandi!  En þetta sama fólk og leyfir sér þannig að kalla eyðiland hugmynda sinna Ísland, hefur sjálft svo litla trú á Íslendingum að það er meira en vantrú, það er fyrirlitning. Þau sitja, eftir misheppnaða skyndisókn gegn þjóðarvilja, brennimerkt sviknum loforðum, lafhrædd með með skemmdarverk sín í þingnefndum og þora ekki að bera undir þjóðina.  Þjóðina, sem hefur ekki trú á Íslandi, þeirra Íslandi, en vill frelsi til að velja sjálf.

En á meðan ríkisstjórn landsins hrekst stöðugt undan sjálfri sér og þrengir stöðuna í pólitísku manntafli við  raunveruleikann blómstar sú Reykjavík sem Jón Gnarr kveður sem borgarstjóri, aldrei vinsælli. Svona er tilveran óútreiknanleg. Túristar eru nú staðfuglar í Reykjavík og fjölbreytni og kraftur borgarinnar aldrei verið meiri og gerir þjóðina ríkari, rétt eins og síldin og fólkið á Siglufirði gerði okkur öll ríkari. Blómstandi mannlíf hvar sem er, eflir nefnilega okkur öll. Og nú eru líka bjartari tímar líka á Siglufirði, menn hættir að bíða eftir síldinni, en veðja á fólk og hugmyndir. 

Það er farið að heyrast að Jón Gnarr hafi gerbylt stjórnmálum á Íslandi, eins og brátt muni sjást. Maðurinn sem neitaði að vera stjórnmálamaður og varð áhrifamesti stjórnmálamaðurinn. Hvað gerði Jón Gnarr? Ekkert. Nema hlífði okkur við stjórnmálum; klækjum, útúrsnúningi, orðavaðli og spillingu.  Og jú, fagnaði margbreytileikanum. Óttaðist ekki mannlífið, enda sjálfur villingur af Hlemmi og talandi dæmi um hvað lífið er ófyrirsjánlegt, sé því lifað.


Og þetta verður því  krafan, að stjórnmálamenn hafi trú á fólki og trú á menningu og næga trú á sjálfum sér til að hafna útúrsnúningum, blekkingum og klækjum.

Tuesday, March 11, 2014

Tapað stríð

Sumt stríð verður aldrei unnið. Þannig er um dauðastríðið, því öllu er afmörkuð stund, og þannig er um stríðið sem ríkisstjórn Íslands lýsti á hendur þjóðinni um ákvörðunarréttinn í samskiptum við Evrópusambandið. Það stríð mun hún aldrei vinna. Hún getur sprengt brýrnar og plægt upp járnbrautirnar, en stríðið vinnur hún aldrei.

Því þó hún fengi þingið til að slíta samningaviðræðum við Evrópu, hvers virði yrði slíkur gerningur? Formlega tæpast gildur, gerður í hrópandi andstöðu við yfirgnæfandi meirihluta þjóðarinnar með sviknu umboði í þokkabót, fengnu með loforði um þjóðaratkvæði áður. Og siðferðislega? Já, siðferðislega væri gildi slíkrar slitatillögu jafngott stríðsyfirlýsingu þings við þjóðina.

Hvernig dettur mönnunum þetta í hug, myndi móðir mín kannski segja, er þeim ekki sjálfrátt? Og það er meinið, kannski er þingmönnunum ekki sjálfrátt. Kannski eru það aðrir sem ráða og segja þeim fyrir verkum. Það hneygjast að minnsta kosti margir til að ætla, sem þrumulostnir horfa á þingmeirihlutann þverskallast við hinu augljósa, að draga ályktunartillöguna til baka og efna til kosninga. Hvers konar svar er það, að hafa skipt um skoðun þegar loforð eru hermd upp á mann og hverskonar heimspeki er varnaglakenningin um orðheldni? Og hvers konar röksemdafærsla er það, að lítill meirihluti í skoðanakönnunum, andvígur inngöngu í ESB, helgi að ekki sé tekið mark á yfirgnæfandi meirihluta, sem vill klára samning? Þetta er tapað stríð.

En  hvað hefur leitt þessa þingmenn okkar í slíkar ógöngur? Það er stríðsmóður hinna áköfu Evrópuandstæðinga og hvernig hagmunirnir kynda undir ófriðarkötlunum með misheppnuðu vali á sendiboðum.  Öllu er afmörkuð stund, líka valdi, virtust þeir ekki vita. Gömlu valdsmennirnir treystu herkænsku sinni. Evrópuspursmálið mætti afgreiða hratt og vel út úr heiminum með snöggu höggi á hnakkann, rétt eins og sumum var tryggt áhyggjulaust ævikvöld hér um árið. Þeir sögðu að spurningin um samningaviðræður væri spurningin um já/nei ESB. Skoðun þjóðarinnar lægi fyrir eftir skoðanakannanir og þingkosningar og því mætti afgreiða málið dautt með snöggu þingvinki.

Sannleikurinn er einfaldur, ég tala ekki um í sambanburði við herkænskuna, en á það samt til að sigra. Þetta mikla mál, samskipti Íslands og Evrópusambandins verður ekki leitt til lykta nema á einn veg og það er einfaldasti og augljósasti vegurinn að fara. Þjóðin verður að kjósa, að fengnum samningi að kjósa um og virða niðurstöðuna.  Það er pólitískt, siðferðislega og samfélagslega eina leiðin sem er okkur fær og hún er jafn sjálfsögð og börn fæðist á hverjum degi, dánir séu bornir til grafar og gamlir þulir setjist í helgan stein.

Thursday, February 27, 2014

Ómöguleikinn af stöðinni

Ég þekki unga konu upp í Borgarfirði, sem sótti um góða stöðu í bænum og vonar að verði farsælt framtíðarstarf. Það kemur reyndar annar umsækjandi til greina, strákur á Laugarvatni. Þar eð þau voru boðuð samtímis í starfsviðtal má ekki klikka að koma á réttum tíma. En unga konan á engan bíl og býr afskekkt, svo hún hringdi í leigubílastöð sem hún er vön að nota, en lenti á dáldið önugum bílstjóra sem var ekkert um túrinn gefið. Var ekki betur að heyra en hann legði fæð á borgfirðinga, en þegar hún lýsti hve þetta skipti hana miklu máli og hverra erinda hún færi, sagðist hann skyldi koma. Svo skiptust þau á tölvupóstum og þetta var afdráttarlaust ákveðið.

Nú rennur upp sá dagur að hún á að koma í viðtalið, en enginn kemur bíllinn að sækja hana. Byrjuð að stressast hefur hún upp á bílstjóranum, sem bregst hinn versti við og ætlar hvergi að koma. Hann sé að fara á Laugarvatn, ekki upp í Borgarfjörð. Konan, vonsvikin og reið, les honum loforðin sem hann hafði gefið, svo ekkert færi milli mála, en bílstjórinn sat við sinn keip.
-"Þú hlýtur að skilja að það er leigubílalegur ómöguleiki að sækja farþega samtímis í Borgarfjörð og Laugarvatn" segir hann.
Þá hafði hann sem vaktstjóri á stöðinni ákveðið að senda alla bílana á Laugarvatn.
-"Þú skalt samt ekki koma í veg fyrir að ég komist í þetta viðtal, fanturinn þinn" segir konan og skellir á.

Lengra er þessi saga ekki komin, en hún fjallar eins og þið sjáið um ómöguleikann. Fyrri hlutinn um ómöguleika þess að aka bíl samtímis á Laugarvatn og upp í Borgarfjörð og ég er að velta fyrir mér að fjalla um ómöguleika þess að standa ekki við orð sín í seinni hlutanum. Veit bara ekki hvernig sagan á að enda.   

Missi konan af viðtalinu yrði bílstjórinn kannski smám saman ómögulegur af samviskubiti og gerðist myrkfælinn og draughræddur á Lyngdalsheiðinni. Öllum af stöðinni liði illa og færu að villast með farþega um allan bæ, jafnvel um hábjartan dag. Vinnuveitandann, sem réði auðvitað bláeygur strákinn frá Laugarvatni, fer að gruna að eitthvað hefði verið gruggust við ráðningu pilts, sem átti pabba, sem átti leigubílastöð. En allt væri nú um seinan.

Og ef sagan væri þokkalega skrifuð myndi lesandinn undir lokin átta sig á, að hann þekkti þennan vinnuveitanda býsna vel. Vaknaði við hlið hans á hverjum morgni, horfði á hann hlaupa við fót með skólatösku á bakinu, kveddi hann á flugstöðinni á leið út í heim, hitti hann á skrifstofunni, í saumaklúbbnum og veiðiferðinni og færi stundum á kvöldin í heimsókn til hans, lyki lófa um rýra hönd og spyrði upp við eyrað hvernig gengi að láta ellilaunin duga.

En á leiðinni heim í háttinn kviði vinnuveitandinn enn einum morgni með þeim sem eitt sinn var ungur maður frá Laugavatni og hugsaði til stúlku sem honum bauðst, en hann aldrei sá.

Finnst ykkur þetta ekki leiðinleg og niðurdrepandi saga? 

Ef þið viljið annan endi, er hann kannski að finna meðal annarra staða á Austurvelli og á thjod.is


Tuesday, February 18, 2014

Spurning um traust

Var það ekki Davíð Oddsson sem sagði að stjórnmál snéust bara um eitt: traust? Það var að minnsta kosti einhver sem hafði mikið vit á pólitík og hafi það verið Davíð, mátti hann trútt um tala, enginn naut jafn mikils trausts á valdastóli og hann. Og nú má nærri geta að ég er ekki að tala um hvort menn séu traustsins verðir, ég er bara að tala um traustið sem undistöðu áhrifa í stjórnmálum.

Annað dæmi um traust á stjórnmálamanni er tilfellið Sigmundur Davíð Gunnlausgsson, þetta undrabarn íslenskra stjórnmála. Ungi maðurinn með lífsreynda yfirbragðið og göngulag hundrað ára Framsóknar, sem gekk í flokkin til að verða formaður hans og fór í kosningar til að verða forsætisráðherra. Mögum finnst hann dularfullur og jafnvel skrítinn, en hann var á móti Icesave. Sá staðfastasti og ódeigasti allt fram að dóminum örlagaríka. Dóminum sem sýndi að hann var sá eini með viti, að mörgum sýndist. Menn fengu traust á dularfulla undrabarninu. Traust sem dugði deyjandi flokki hans til fáheyrðs kosningasigurs og honum sjálfum æðsta sætis íslenskra stjórnmála.

En það má líka taka dæmi um hið gagnstæða, skort á trausti í stjórnmálum. Þau eru mýmörg, en mér er sérstaklega hugsað til Halldórs Ásgrímssonar. Halldórs forsætisráðherra, nánar til tekið. Þegar nefndir Davíð og Halldór sömdu um að skiptast á að sitja í stólnum og Halldór forsætisráðherra var eins og illa gerður hlutur á rangri hillu. Traust er nefnilega ekki framseljanlegt öðrum og trausti fylgir sú ábyrgð að rísa undir því.

Nú hefur Sigmund Davíð setið sem forsætisráðherra síðan í vor og ekki átt neina einstaka sigurstund frekar en hægt er að ætlast til og fylgið svona heldur reytst af flokknum, rétt eins og búast mátti við. Þá kemur þessi sunnudagsmorgun sem allir tala um og gefur tilefni til að rifja það upp sem Davíð sagði, eða einhver annar. Það skiptir nefnilega engu hvað menn rausa um þetta viðtal, það er bara ein spurning sem skiptir máli: hvaða traust bera menn nú til Sigmundar Davíðs? Ég hef ekki hugmynd um það, en býst við að það hafi dalað fyrst stuðningsmenn hans þökkuðu brosmilda spyrlinum einum rómi framgöngu forsætisráðherrans. Það í sjálfu sér er ekki ýkja traustvekjandi.

En hvað gerir Sigmundur Davíð? Mun hann fara leið auðmýktarinnar og biðjast afsökunar orða sinna, eins og Þórólfur Matthíasson stakk að honum eða mun hann fara leið hetjunnar og takast á við sig annað viðtal, ennþá ágengara? Eða er honum þetta ef til vill ógerlegt?

Eða eru stjórnmál eftir allt alls ekki spurning um traust heldur spurning um trú? Trú, án efa og gagnrýni. Skyldi einhver stjórnmálamaður trúa því sjálfur?