Monday, May 20, 2013

Nýr spítali á gatnamótum

Afsakið, örfá orð um heilbrigðispólitík. Fáir virðast hafa velt vöngum yfir þeim fréttum sem bárust þegar í upphafi stjórnarmyndunar að sjálfstæðismenn vildu aftur sérstakan heilbrigðisrráðherra. Þeim flokki hefur hingað til verið það ráðuneyti laust í hendi í samningum, en virðast nú vilja hafa þar sinn mann fyrst þessi tillaga kemur fram. Stendur eitthvað til? Heilbrigðismálin eru enginn pólitískur sælurætur í þeirri krísu sem verðandi stjórnaflokkar bentu nokkuð dyggilega á í kosningabáráttunni. Og það eru engar ýkjur að heilbrigðiskerið er í alvarlegri kreppu. Hin bráða kreppa er ekki ein, hún er tvöföld og hvor með að minnsta kosti kryppur tvær. Annars vegar er rekstarkreppa eftir ótrúlegan niðurskurð og gengisfellingu í kjölfar hruns með fjársvelta starfsemi og mannauðsvandamál launa, aðstöðu og tækifæra sem ekki eru til neinnar samkeppni lengur. Hins vegar er fjárfestingarkreppa vegna úrelts tækjabúnaðar og haltrandi tækniþróunar, ekki síst á háskólaspítalanum og við því má bæta máli málanna, húsnæðismálunum Landspítala háskólasjúkrahúss. Það er öllum ófremdarástandið ljóst og bráðaþjónusta enn í tvíriti sitthvorumegin Öskjuhlíðar svona löngu eftir sameiningu spítlanna fær mann til að trúa gömlum sögum um draugagang á leiðinni.

Stóra mál fráfarandi stjórnar, Vatnsmýrarspítalinn, er því stigi að manni skilst, að gröfukjaftarnir bíði óþreyjufullir eftir að byrja verkið. Þessi stórframkvæmd vakti hins vegar enga hrifningu verðandi stjórnarflokka og Framsókn vildi í kosningabaráttunni slá henni á frest, svo ný stjórn verður að svara því á fyrsta degi hvort hún ætli að hrökkva eða stökkva út í Vatnsmýrina. Og ef díseldrekunum verður snúið við þarf að kynna okkur plan-bé.

Vert er að hafa í huga að stóri-Landspítali er ekki bara byggingaþyrping heldur líka stefnumótun. Hann er staðfesting og frekari framvinda samjöppunar sérhæfðrar heilbrigðisþjónustu á einn stað undir eina stjórn og það hljómar ekki mjög einkavæðingarvæn stefna. Önnur lausn húsnæðiskreppuni gæti verið hin þveröfuga, að minnka starfsemina og bjóða öðrum að sinna þeim hlutum hennar sem ekki þurfa nauðsynlega að vera á hátæknilegum bráðaspítala. Þetta kemur allt í ljós, eins og karlinn sagði, en ég endurtek að ný ríkisstjórn verður þegar í upphafi að svara hvort fyrri áform standi og hvað annars standi til.

En er krafa sjálfstæðismana um sérstakan heilbrigðisráðherra vísbending um að meiri háttar umbylting í heilbrigðiskerfinu standi til?

No comments:

Post a Comment